Fotbolti.net
08.09.26 - 17:16
Kári Snorrason

Amrabat hættir tímabundið í landsliðinu - „Held ekki áfram undir þessum þjálfara“

Á að baki 69 landsleiki.

Á að baki 69 landsleiki.

Canon

Mynd: EPA

Sofyan Amrabat segist ekki ætla að spila aftur fyrir marakóska landsliðið svo lengi sem þjálfarinn Mohamed Ouahbi er við stjórnvölinn.

Í tilkynningu Amrabat, sem hann birti á Instagram, segir hann að ákvörðunin hafi reynst honum erfið en hann vill ekki greina frá ástæðunum sem liggja að baki.

Hann segist þó ekki vera búinn að leggja landsliðsskóna varanlega á hilluna heldur einungis á meðan Ouahbi stýrir liðinu.

Ouahbi tók við liðinu fyrr á árinu og náði eftirtektaverðum árangri með liðinu á heimsmeistaramótinu þar sem liðið féll úr leik í 8-liða úrslitum.
Amrabat er þrítugur miðjumaður sem er eflaust þekktastur fyrir tímann sinn hjá Man Utd. Hann leikur nú með Ajax í Hollandi.

Mohamed Ouahbi.

Mohamed Ouahbi.

Canon

Mynd: EPA

Amrabat hættir tímabundið í landsliðinu - „Held ekki áfram undir þessum þjálfara“
Canon

Mynd: Skjáskot

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.