Fotbolti.net
08.10.26 - 23:21
Brynjar Ingi Erluson

„Það stendur ekki í starfslýsingunni minni“

„Það stendur ekki í starfslýsingunni minni“
Canon

Mynd: EPA

Matthias Jaissle, stjóri Newcastle United, vildi lítið tjá sig um niðurstöðuna í máli Manchester City, sem var fundið sekt í langflestum ákæruliðum vegna brota á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.
Stjóri Sunderland: Keppnin missir gildi sitt ef deildin tekur ekki hart á þessu
TENGT EFNI

Stjóri Sunderland: Keppnin missir gildi sitt ef deildin tekur ekki hart á þessu

Nokkrir stjórar hafa verið spurðir út í mál ensku úrvalsdeildarinnar gegn Man City og eru skoðanir skiptar.

Flestir hafa þó farið varlega í yfirlýsingar og vilja lítið tjá sig á meðan málið er til meðferðar. Það eru ágætis líkur á því að félögin hafi hvatt þá til þess að fara varlega í orðavalinu.

„Það er ekki mitt hlutverk sem stjóri annars félags að dæma um þetta. Það stendur ekki í starfslýsingunni minni.“

„Yfirvöld sjá um málið og því verður fylgt eftir í skýru ferli. Ég tala fyrir hönd félagsins þegar ég segi að rétta nálgunin sé að einbeita okkur að því sem við getum gert betur og haft áhrif á inni á vellinum.“

„Við eigum að einbeita okkur að því að bæta okkur og koma félaginu áfram,“
sagði Jaissle.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.