Fotbolti.net
08.11.14 - 14:54
Magnús Már Einarsson

Atli Fannar í Víking (Staðfest)

Atli Fannar er mættur í Fossvoginn.

Atli Fannar er mættur í Fossvoginn.

Canon

Mynd: Víkingur R.

Knattspyrnudeild Víkings hefur komist að samkomulagi um kaup á sóknarmanninum Atla Fannari Jónssyni frá ÍBV.
Leikmaðurinn sem fæddur er árið 1995 lék með Eyjamönnum síðastliðið sumar en áður hafði hann leikið meistaraflokksleiki fyrir Breiðablik og Tindastól.

,,Víkingur samdi við leikmanninn til þriggja ára og bindur vonir við að hann eigi eftir að reynast góður liðsstyrkur,\" segir í fréttatilkynningu frá Víkingi.

Atli er þriðji leikmaðurinn sem Víkingur fær í sínar raðir í vetur en áður höfðu Hallgrímur Mar Steingrímsson og Andri Rúnar Bjarnason kom til félagsins frá KA og BÍ/Bolungarvík.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.