08.11.14 - 14:14
Magnús Már Einarsson
Guðjón Árni í Keflavík (Staðfest)

Guðjón Árni er kominn aftur til Keflavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík hefur fengið hægri bakvörðinn Guðjón Árna Antoníusson í sínar raðir frá FH en þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.
Guðjón Árni hefur leikið með FH undanfarin þrjú ár en hann hefur nú ákveðið að semja við Keflavík á nýjan leik.
Guðjón Árni skrifaði undir tveggja ára samning við Keflavík en hann verður einnig styrktarþjálfari liðsins.
<i>,,Ég er ánægður með að vera loksins búinn að taka ákvörðun,\"</I> sagði Guðjón Árni við Víkurfréttir.
<i>,,Mér leið vel í Keflavík á sínum tíma og ég á ekki von á öðru en að mér eigi eftir að líða áfram vel hér.\"</I>

Guðjón Árni hefur lítið spilað síðustu tvö tímabil vegna höfuðmeiðsla og líkur voru á að hann þyrfti að leggja skóna á hilluna.
Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur nú fengið grænt ljós á að halda áfram.
,,Ég finn ekki fyrir neinu og fékk að vita að ég mætti leika mér áfram í fótbolta. Ég tók ákvörðun að gera það og er mjög sáttur með það,\" sagði Guðjón Árni.

Heimild: Víkurfréttir