Fotbolti.net
07.11.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Hefði verið erfitt fyrir öll lið í heiminum að spila gegn okkur"

„Hefði verið erfitt fyrir öll lið í heiminum að spila gegn okkur"
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest vann magnaðan 3-1 sigur á Man City í kvöld. Forest er í 16. sæti með níu stig en City er í 2. sæti með 21 stig, sex stigum á eftir Arsenal.

Oliver Glasner, stjóri Forest var að sjálfsgöðu himinlifand eftir leikinn.
„Þetta var mjög góður dagur til að spila við Manchester City en, satt að segja, þá var orkan í liðinu og á City Ground svo ótrúleg að það hefði verið erfitt fyrir öll lið í heiminum að spila gegn okkur í dag,“ sagði Glasner.

„Þetta getur verið snúningspunktur en við verðum að sanna það. Margir leikmenn fara í landsliðin sín, vonandi koma allir góðir til baka þegar við förum til Bournemouth. Hvernig við spiluðum í dag ætti að gefa okkur sjálfstraust:"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.