Fotbolti.net
07.11.26 - 17:06
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Andri Lucas sjóðandi heitur - Ótrúleg endurkoma Cardiff

Andri Lucas er kominn með tíu deildarmörk!

Andri Lucas er kominn með tíu deildarmörk!

Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Andri Lucas Guðjohnsen mætir til leiks með íslenska landsliðinu í toppformi, en hann skoraði tíunda deildarmark sitt á tímabilinu í 2-1 sigri Blackburn Rovers á West Ham í ensku B-deildinni í dag.
Framherjinn hefur verið iðinn við kolann undanfarið, sérstaklega eftir síðasta landsleikjaglugga, og skorað sjö mörk í síðustu sjö leikjum.

Hann braut ísinn fyrir Blackburn gegn Hömrunum snemma í síðari hálfleik með laglegu skallamarki eftir fyrirgjöf frá Jayden Fevrier.

Hlaup Andra inn í teiginn var frábært og fyrirgjöfin ekki síðri, en þetta var tíunda deildarmark hans á tímabilinu. Hann er næstmarkahæstur í deildinni ásamt Jack Moylan, leikmanni Cardiff, en Will Lankshear, framherji Middlesbrough, er markahæstur með 13 mörk.

Andri fór af velli þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka og skömmu síðar bætti Blackburn við öðru marki. West Ham náði að klóra í bakkann með einu marki, en lengra komust Hamrarnir ekki.

Blackburn situr í 13. sæti deildarinnar með 21 stig, en West Ham er í níunda sæti með 23 stig.

Middlesbrough komst á topp deildarinnar þrátt fyrir markalaust jafntefli gegn Watford.

Cardiff vann þá ótrúlegan og dramatískan 5-4 sigur á Burnley eftir að hafa verið 4-1 undir þegar aðeins hálftími var eftir af leiknum. Southampton tapaði hins vegar 1-0 fyrir Preston.

Birmingham 2 - 1 Swansea
0-0 Ross Stewart ('12 , Misnotað víti)
1-0 Jay Stansfield ('29 )
2-0 Christoph Klarer ('65 , sjálfsmark)
3-0 Jay Stansfield ('87 )
Rautt spjald: Marko Stamenic, Swansea ('26)

Blackburn 2 - 1 West Ham
1-0 Andri Gudjohnsen ('54 )
2-0 Oladapo Afolayan ('71 )
2-1 Joel Piroe ('82 )

Cardiff City 5 - 4 Burnley
0-1 Andreas Hountondji ('15 )
0-2 Marcus Edwards ('25 )
1-2 Ollie Tanner ('40 )
1-3 Largie Ramazani ('55 )
1-4 Alex Robertson ('62 , sjálfsmark)
2-4 Yousef Salech ('65 )
3-4 Jack Moylan ('75 , víti)
4-4 Yousef Salech ('82 )
5-4 Alex Robertson ('90 )

Charlton Athletic 2 - 1 Sheffield Utd
1-0 Millenic Alli ('12 )
1-1 Jordan Ayew ('25 )
2-1 Matty Godden ('79 )

Preston NE 1 - 0 Southampton
1-0 Jordan Thompson ('33 )

QPR 2 - 1 Lincoln City
1-0 Richard Kone ('11 )
1-1 Dom Jefferies ('29 )
2-1 Glen Kamara ('80 )

Watford 0 - 0 Middlesbrough

West Brom 3 - 0 Millwall
1-0 Isaac Price ('50 )
2-0 Jayson Molumby ('78 )
3-0 Felix Horn Myhre ('89 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+628
6Swansea15+426
7West Ham15+1524
8Southampton15+1424
9Sheffield Utd15+323
10QPR15+522
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-219
14Millwall15-218
15Wrexham15-218
16Bristol City15-818
17Bolton15-917
18Lincoln City15-1016
19Cardiff City15-215
20Watford15-1015
21Charlton Athletic15-1115
22Burnley15-713
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.