Fotbolti.net
07.11.26 - 17:11
Brynjar Ingi Erluson

Kærkominn sigur hjá Loga - Davíð á toppnum

Logi og félagar unnu langþráðan sigur

Logi og félagar unnu langþráðan sigur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Logi Tómasson og félagar hans í Samsunspor fögnuðu í dag sínum fyrsta deildarsigri síðan í ágúst.
Logi var í byrjunarliði Samsunspor sem marði 1-0 sigur á Konyaspor í tyrknesku úrvalsdeildinni.

Þetta var fyrsti sigur Samsunspor síðan í ágúst og því afar kærkominn en liðið hafði tapað átta leikjum í röð. Liðið er í næst neðsta sæti deildarinnar og vonast til að geta byggt ofan á þessa frammistöðu.

Kristófer Jónsson var á miðjunni hjá Reggiana sem tapaði 4-3 fyrir U23 ára liði Atalanta í ítölsku C-deildinni. Reggiana situr í fjórða sæti B-riðils með 20 stig.

Hilmir Rafn Mikaelsson kom inn af bekknum í hálfleik þegar Sigma Olomouc steinlá 5-0 gegn Hradec Kralove í tékknesku úrvalsdeildinni. Sigma er í fjórða sæti með 24 stig.

Bjarni Mark Antonsson og Oskar Sverrisson voru báðir í byrjunarliði Trelleborg sem vann 3-2 sigur á Jönköping í lokaumferð sænsku C-deildarinnar.

Trelleborg vann suðurriðilinn með yfirburðum og endaði með 69 stig, sextán stigum meira en næsta lið. Félagið hefur því tryggt sér sæti í B-deildinni á næsta tímabili.

Davíð Kristján Ólafsson var í byrjunarliði Polonia Warszawa sem vann öruggan 3-0 sigur á Warta Poznan í pólsku B-deildinni. Polonia situr á toppi deildarinnar með 25 stig.

Eyþór Martin Björgólfsson lék síðan síðustu mínúturnar þegar Motherwell gerði 1-1 jafntefli gegn Dundee í skosku úrvalsdeildinni. Motherwell er í níunda sæti með 13 stig.
Davíð Kristján er á toppnum í B-deildinni í Póllandi

Davíð Kristján er á toppnum í B-deildinni í Póllandi

Canon

Mynd: Polonia Warszawa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.