Fotbolti.net
07.11.26 - 16:57
Brynjar Ingi Erluson

England: Þolinmæðisvinna hjá Arsenal gegn nýliðunum

Úr leik Arsenal og Hull

Úr leik Arsenal og Hull

Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal unnu þolinmæðissigur á nýliðum Hull City, 1-0, í tíundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Emirates-leikvanginum í dag.
Arsenal var mun meira með boltann gegn Hull City, en gekk illa að skapa sér hættuleg færi stærstan hluta leiksins.

Nokkur athyglisverð atvik komu upp í fyrri hálfleiknum. Kai Havertz var meðal annars togaður niður í vítateignum án þess að nokkuð væri dæmt og undir lok hálfleiksins lenti hann aftur í svipuðu atviki.

Þá togaði Nobel Mendy í treyju Havertz og þótt um augljóst brot væri að ræða var Þjóðverjinn rangstæður og því dæmd aukaspyrna á Arsenal.

Hull átti hins vegar mjög góðan fyrri hálfleik. Gestirnir voru afar skipulagðir í varnarleiknum og náðu öðru hvoru að ógna marki heimamanna.

Snemma í síðari hálfleik fékk Noni Madueke ágætt skotfæri, en Kostas Tzolakis varði vel frá honum.

Madueke lét aftur til sín taka þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka. Hann átti þá skot sem Tzolakis varði, en boltinn hrökk út til Martin Ödegaard sem kom á ferðinni og skoraði.

Þolinmæði Englandsmeistaranna bar loksins árangur og eftir markið höfðu þeir góð tök á leiknum og sigldu sigrinum örugglega í höfn.

Arsenal situr því á toppi deildarinnar með 27 stig, sex stigum meira en Manchester City í öðru sæti. Hull er hins vegar í 13. sæti með ellefu stig.

Spennandi lokamínútur á Craven Cottage

Fulham og Newcastle United skildu jöfn, 1-1, á Craven Cottage í leik þar sem allt fór á fullt undir lokin.

Gestirnir töldu sig hafa komist yfir á 33. mínútu þegar Dan Burn kom boltanum í netið, en markið var dæmt af þar sem Yoane Wissa hafði brotið á Timothy Castagne í aðdragandanum.

Harvey Barnes fór síðan illa með færin sín fyrir Newcastle og hefði hæglega getað skorað þrennu, en honum tókst ekki að nýta þau.

Sander Berge átti hörkuskot rétt framhjá marki Newcastle og þegar um tuttugu mínútur voru eftir vildi hann fá vítaspyrnu eftir viðskipti sín við Burn inni í teignum. Ekkert var hins vegar dæmt.

Þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma kom loksins fyrsta markið. Jacob Murphy komst þá inn í afleita sendingu út til vinstri, geystist í átt að vítateignum og skrúfaði boltann glæsilega í vinstra hornið.

Fulham var þó ekki lengi að svara fyrir sig og bæta upp fyrir mistökin. Rodrigo Muniz fékk boltann vinstra megin í vítateignum og tókst einhvern veginn að lyfta honum yfir markvörðinn og í fjærhornið.

Newcastle fékk síðan dauðafæri til að tryggja sér öll þrjú stigin þegar Lewis Hall fékk sendingu inn á miðjan vítateiginn og stóð þar í algjöru dauðafæri. Bernd Leno sá hins vegar við honum og varði, en Hall hefði átt að gera mun betur og stýra boltanum í hornið.

Jafntefli varð því niðurstaðan eftir æsispennandi lokamínútur.

Newcastle situr í ellefta sæti deildarinnar með tólf stig, en Fulham er í fimmtánda sæti með tíu stig.

Arsenal 1 - 0 Hull City
1-0 Martin Odegaard ('72 )

Fulham 1 - 1 Newcastle
0-1 Jacob Murphy ('80 )
1-1 Rodrigo Muniz ('83 )
Martin Ödegaard gerði sigurmarkið

Martin Ödegaard gerði sigurmarkið

Canon

Mynd: EPA

Rodrigo Muniz bjargaði stigi fyrir Fulham

Rodrigo Muniz bjargaði stigi fyrir Fulham

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+925
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Hull City10+112
11Tottenham10-112
12Aston Villa9-312
13Newcastle10-312
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.