Fari ekki frá KA nema „fáránleg" tilboð berist

Hans Viktor verið orðaður við Val, ÍA og Þrótt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver hefur verið orðaður við uppeldisfélagið Þrótt.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hvað gerir Nikolaj Hansen?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verður Rodri áfram?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á ekki von á því að Adam verði áfram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samuel Kroon er farinn frá KA.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hans Viktor verið orðaður við Val, ÍA og Þrótt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann segir þjálfararáðningu í forgangi og að Srdjan Tufegdzic, Túfa, sé fyrsti kostur KA manna.
Hann segir ljóst að þeir Samuel Kroon, Jóan Símun Edmundsson og Adam Ægir Pálsson verði ekki áfram hjá félaginu. Þá sé samningur Rodri runninn út.
Nikolaj Hansen hefur verið orðaður við KA og þeir Hans Viktor Guðmundsson og Oliver Heiðarsson verið orðaðir í burtu.

Af hverju féll KA?
„Við höfum hlerað hann eins og nokkra aðra leikmenn. Hann er ennþá leikmaður Víkings, þeir leyfðu okkur að ræða við hann, en hann er ekki búinn að taka neina ákvörðun hvort hann vilji yfir höfuð fara frá Víkingi eða hvort KA sé möguleiki."
„Ég held að við séum eitt af 4-6 liðum sem eru búin að fá leyfi frá Víkingi til að fá að ræða við hann. Hann á eftir að klára sín mál hjá Víkingi og þá verður kannski hægt að fara í alvöru viðræður við hann."
Ef hann tekur ákvörðun að fara frá Víkingi, ertu þá bjartsýnn að þið náið að landa honum?
„Ég er alltaf bjartsýnn, alveg fram í rauðan dauðann. En þetta er ekkert komið á þann stað að fara ræða hlutina af þannig alvöru að ég ætli að fara gera mér vonir strax. Eins og með alla leikmenn þá er fyrsta spurning hjá honum hver sé að fara þjálfa liðið. Það er erfitt að vera í viðræðum um leikmenn á meðan við erum ekki búnir að klára þjálfaramálin. Forgangurinn er að klára þjálfaramálin."
Er ljóst að einhver er farinn frá KA eða muni fara?
„Já. Jóan (Símun Edmundsson) er búinn með sinn samning, Rodri er búinn með samning og Samuel Kroon verður ekki áfram. Ég geri svo ekki ráð fyrir því að Adam (Ægir Pálsson) verði áfram."
„Það eru viðræður við nokkra leikmenn í viðbót, en ég á von á því að flestir sem voru á tímabilinu verði áfram með okkur."
Var eitthvað samtal um að Rodri yrði áfram?
„Staðan okkar breytist við það að fara niður, segjum það alveg eins og er, það er þónokkuð fjárhagslegt tap við það að fara niður."
„Ég vona og pínu geri ráð fyrir að hann kíki á okkur í æfingaferðinni í febrúar-mars. Þá ætti hann að vera kominn á þann stað að mega æfa fótbolta aftur, eftir að hafa farið í krossbandsaðgerð í vor. Við kannski tökum stöðuna á honum þar, en akkúrat eins og staðan er í dag er samningurinn hans búinn og við munum ræða við hann þegar við sjáum hvernig meiðslastaðan verður."
Tveir leikmenn sem eru áfram á samningi hjá KA hafa verið orðaðir annað. Það eru þeir Hans Viktor Guðmundsson og Oliver Heiðarsson.
Hefur þú fengið einhver formleg tilboð eða fyrirspurnir í þessa leikmenn?
„Nei. Og það eru mjög skýr skilaboð, þeir verða báðir í KA á næsta ári."
„Þeir eru með samning við okkur áfram, við erum ekki á þeim stað að við þurfum að selja einhverja leikmenn. Jú jú, ef það kemur eitthvað fáránlegt tilboð sem ekki er hægt að segja nei við. Annars ætlum við frekar að gefa í ef eitthvað er, koma okkur beint aftur í Bestu deildina og vera með gott og sterkt lið í Bestu deildinni þegar félagið verður 100 ára 2028," segir Sævar að lokum.

Oliver hefur verið orðaður við uppeldisfélagið Þrótt.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hvað gerir Nikolaj Hansen?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verður Rodri áfram?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á ekki von á því að Adam verði áfram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samuel Kroon er farinn frá KA.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


