08.12.14 - 23:19
Ívan Guðjón Baldursson
Domenico Di Carlo nýr þjálfari Harðar hjá Cesena (Staðfest)

Di Carlo féll úr A-deildinni með Livorno á síðasta tímabili.

Mynd: Getty Images

Di Carlo féll úr A-deildinni með Livorno á síðasta tímabili.

Mynd: Getty Images
Domenico Di Carlo er nýr stjóri nýliða Cesena í ítölsku efstu deildinni og verður það út tímabilið, eða til 30. júní 2015.
Hörður Björgvin Magnússon er leikmaður Cesena sem er í næstneðsta sæti deildarinnar með 8 stig eftir 14 umferðir.
Hörður Björgvin Magnússon er leikmaður Cesena sem er í næstneðsta sæti deildarinnar með 8 stig eftir 14 umferðir.
Pierpaolo Bisoli var rekinn úr þjálfarastöðunni á dögunum og var búist við að Davide Ballardini tæki við félaginu en svo var ekki.
Di Carlo, sem er 50 ára gamall, hefur áður stýrt liðum á borð við Sampdoria, Parma og Chievo.
Di Carlo, sem er 50 ára gamall, hefur áður stýrt liðum á borð við Sampdoria, Parma og Chievo.
