Fotbolti.net
08.12.14 - 17:22
Hafliði Breiðfjörð

Ingvar Þór Kale í Val (Staðfest)

Ingvar í leik með Víkingi síðastliðið sumar.

Ingvar í leik með Víkingi síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ingvar Þór Kale hefur gengið til liðs við Val en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið nú síðdegis. Ingvar staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net.

Ingvar, sem fagnar 31 árs afmæli sínu í dag, yfirgaf uppeldisfélag sitt Víking á dögunum eftir að hafa varið markið þar undanfarin tvö ár.
,,Það er flott umgjörð hérna og allt til alls, ég er mjög ánægður með að vera kominn í þennan alvöru klúbb,\" sagði Ingvar við Fótbolta.net en lengra viðtal við hann birtist innan tíðar.

Ingvar hefur lengst af á ferli sínum spilað með Víkingi en hann varði einnig mark Breiðabliks frá 2009 til 2012.

Hjá Val mun Ingvar berjast við Anton Ara Einarsson um markvarðar stöðuna en Fjalar Þorgeirsson fór frá félaginu á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.