Fotbolti.net
08.12.14 - 14:26
Magnús Már Einarsson

Siggi Raggi ráðinn aðstoðarþjálfari Lilleström (Staðfest)

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá norska félaginu Lilleström en hann mun starfa með Rúnari Kristinssyni sem var ráðinn þjálfari á dögunum.

Sigurður Ragnar var einnig með tilboð um að taka við sem aðstoðar tæknilegur ráðgjafi hjá ástralska knattspyrnusambandinu en hann ákvað að fara frekar til Lilleström.
,,Ég vil þjálfa úti á velli og ég fæ tækifæri til þess hjá Lilleström,\" sagði Sigurður Ragnar.

,,Það verður spennandi að vinna með Rúnari sem ég þekki frá fyrri tíð þó að ég hafi aldrei starfað með honum áður.\"

Auk þess að vera aðstoðarþjálfari Lilleström þá mun Sigurður Ragnar þjálfa varalið félagsins í norsku C-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.