08.12.14 - 12:30
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari Harðar látinn taka poka sinn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
AC Cesena í Seríu A á Ítalíu hefur ákveðið að reka Pierpaolo Bisoli eftir slakt gengi liðsins á leiktíðinni en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Bisoli tók við Cesena árið 2012 og tókst að stýra liðinu upp um deild á síðustu leiktíð en árangur liðsins á þessari leiktíð hefur verið slakur.
Liðið er í nítjánda sæti deildarinnar með 8 stig en liðið hefur fengið sex mörk á sig í síðustu tveimur leikjum og tapaði meðal annars tveggja marka forskoti gegn Atalanta í gær.
Félagið staðfesti nú rétt í þessu að Bisoli hafi verið látinn taka poka sinn en það má búast við því að Davide Ballardini, fyrrum þjálfari Palermo og Genoa, taki við.
Ballardini kann vel við sig í fallbaráttunni en hann hefur bjargað bæði Genoa og Cagliari frá falla á ævintýralegan hátt.
Hörður Björgvin Magnússon er á láni hjá Cesena frá Juventus en hann er samtals búinn að spila 4 leiki á þessari leiktíð og leggja upp eitt.
Hann var kominn í kuldann hjá Bisoli en hann spilaði síðast gegn Chievo fyrir mánuði síðan.