08.12.20 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Eiður Aron aftur til ÍBV (Staðfest)

Mynd: ÍBV

Mynd: ÍBV
Varnarmaðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við ÍBV og mun flytja til Vestmannaeyja með fjölskylduna sína.
Eiður Aron hóf ferilinn í Vestmannaeyjum en flutti erlendis til að reyna fyrir sér í atvinnumennsku áður en hann gekk í raðir Vals 2017.
Hann lék með Örebro, Sandnes Ulf og Holsten Kiel áður en hann hélt til Vals.
Eiður Aron er þrítugur og hefur hampað ýmsum titlum með Íslandsmeisturum Vals.
Hann er fenginn til að hjálpa ÍBV í Lengjudeildinni á næsta ári eftir að liðinu mistókst að fara aftur upp í efstu deild í haust.
„Það er gríðarlega mikil ánægja með endurkomu Eiðs Arons og vill knattspyrnuráð óska honum, sem og stuðningsmönnum, til hamingju með endurkomuna! Áfram ÍBV!" segir í yfirlýsingu frá ÍBV.