Fotbolti.net
08.12.20 - 22:27
Ívan Guðjón Baldursson

Mbappe: Webo við stöndum með þér

Mbappe: Webo við stöndum með þér
Canon

Mynd: Getty Images

Kylian Mbappe var í byrjunarliði PSG sem tók á móti Istanbul Basaksehir í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Mbappe og félagar spiluðu þó aðeins í fjórtán mínútur áður en leikmenn gengu af velli vegna meintra kynþáttafordóma fjórða dómara rúmenska dómarateymisins.

Pierre Webo, aðstoðarþjálfari Basaksehir, fékk rautt spjald og á að hafa verið kallaður 'negro' af fjórða dómaranum. Demba Ba sat á bekk Basaksehir og heyrði samtalið. Hann mótmælti hástöfum og á endanum gengu leikmenn Basaksehir og PSG af velli.

Mbappe er búinn að birta færslu á Twitter þar sem hann segist standa með Webo og leikmönnum Basaksehir í baráttunni gegn kynþáttafordómum.

„SEGJUM NEI VIÐ RASISMA. WEBO VIÐ STÖNDUM MEÐ ÞÉR."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.