08.12.20 - 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Stöðvuðu skyndisókn með bolta sem fór úr leik

Sebastian Larsson.

Mynd: Getty Images

Sebastian Larsson.

Mynd: Getty Images
Það átti sér stað athyglisvert atvik í leik AIK og Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni á dögunum.
Leikurinn endaði með 2-2 jafntefli. Elfsborg komst í 2-0 en AIK kom til baka og náði að jafna leikinn.
AIK fór ekki hefðbundnar leiðir til að hanga á stiginu. Á 93. mínútu fékk AIK hornspyrnu sem var skölluð aftur fyrir endamörk. Sebastian Larsson, reynslumikill leikmaður liðsins, ákvað hins vegar að sparka boltanum aftur í leik.
Samherji hans sparkaði boltanum svo í átt að leikmanni Elfsborg sem var kominn á ferðina með boltanum sem var verið að spila með.
Ekki oft sem maður sér svona. Leikurinn var stöðvaður og fékk Larsson að líta gula spjaldið.
Hér að neðan má sjá myndband.

Absolutely incredible shithousing by AIK against Elfsborg in the Swedish league from r/soccer