Fotbolti.net
08.12.20 - 23:17
Ívan Guðjón Baldursson

PSG mætir Istanbul Basaksehir á morgun (Staðfest)

PSG mætir Istanbul Basaksehir á morgun (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

UEFA er búið að staðfesta nýjan leiktíma fyrir viðureign PSG og Istanbul Basaksehir í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Leikurinn hófst fyrr í kvöld en leikmenn gengu af velli eftir tæpan stundarfjórðung til að mótmæla meintum kynþáttafordómum rúmenska fjórða dómarans. Hann er sagður hafa notað orðið 'negro' til að benda á Pierre Wome, aðstoðarþjálfara Basaksehir.

Viðureignin fer fram annað kvöld, klukkan 17:55 á íslenskum tíma. Leikurinn hefst þar sem hann endaði, eða á fimmtándu mínútu. Staðan er 0-0.

UEFA hefur skipt rúmenska dómarateyminu út og lofar knattspyrnusambandið að hrinda af stað ítarlegri rannsókn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.