Fotbolti.net
08.12.20 - 14:49
Magnús Már Einarsson

„Skil ekki hverjum dettur þessi vitleysa í hug"

Haraldur Haraldsson formaður ÍTF.

Haraldur Haraldsson formaður ÍTF.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er galið," segir Haraldur Haraldsson, formaður ÍTF, um nýjar sóttvarnarreglur sem voru kynntar í dag. Reglurnar gilda til 12. janúar næstkomandi.

Í reglðugerðinni segir: „Íþróttir: Íþróttaæfingar einstaklinga sem fæddir eru 2004 og fyrr eru heimilar með og án snertingar í íþróttum innan ÍSÍ í efstu deild. Æfingar afreksfólks í einstaklingsbundnum íþróttum eru heimilar. Æfingar sem krefjast snertingar innan bardagaíþrótta eru þó ekki heimilar."

„Íþróttir almennings: Öllum er heimilt að stunda skipulagðar æfingar utandyra sem krefjast ekki snertingar."


Haraldur er hissa á að reglurnar heimili ekki æfingar hjá fleiri liðum en raun ber vitni.
„Þetta er algjörlega með ólíkindum. Það er hægt að draga fram ótal dæmi. KA og Þór, Víking og Fram, kvennalið Víkings og karlalið, kvennalið Þróttar og karlalið Þróttar. Þetta er svo galið að ég skil ekki hverjum dettur þessi vitleysa í hug," sagði Haraldur.

„Ég trúi ekki öðru en að það komi breytingar á þessu. Ég bara skil þetta ekki. Þá hef ég verulegar áhyggjur af unga fólkinu.
Við erum búin að senda á KSÍ til að spyrja út í þetta og það eru allir jafn hissa. Það er heldur ekki eins og þetta gildi í eina viku, þetta er til 12. janúar."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.