Fotbolti.net
08.12.20 - 15:25
Elvar Geir Magnússon

Tiago í Grindavík (Staðfest)

Tiago lék við góðan orðstír hjá Fram.

Tiago lék við góðan orðstír hjá Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík hefur gert tveggja ára samning við portúgalska sóknarmiðjumanninn Tiago Fernandes.
Tiago er 25 ára gamall miðjumaður sem lék við góðan orðstír hjá Fram tímabilin 2018 og 2019. Hann hefur leikið 49 leiki í deild og bikar á Íslandi og skorað 6 mörk.

„Honum er ætlað stórt hlutverk á miðjunni hjá Grindavík á næstu leiktíð. Tiago hittir fyrir hjá Grindavík þá Guðmund Magnússon sem hann lék með hjá Fram árið 2018 og Ólaf Brynjólfsson sem var aðstoðarþjálfari hjá Fram sama ár. Tiago er væntanlegur til æfinga í janúar á nýju ári," segir á heimasíðu Grindavíkur.

Þar má finna ummæli frá Sigurbirni Hreiðarssyni, þjálfara liðsins.

„Við höfum lengi haft augastað á Tiago sem er mjög frambærilegur knattspyrnumaður – góður á boltanum og virkilega klókur leikmaður," segir Sigurbjörn.

„Hann kemur til með að styrkja okkur á miðsvæðinu. Hann verður frábær viðbót við okkar leikmannahóp sem er farinn að taka á sig mynd og við væntum mikils af Tiago á næstu árum."

Grindavík hafnaði í fjórða sæti Lengjudeildarinnar í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.