Fotbolti.net
09.01.15 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Alex Neil ráðinn stjóri Norwich (Staðfest)

Alex Neil er nýr stjóri Norwich.

Alex Neil er nýr stjóri Norwich.

Canon

Mynd: Getty Images

Norwich City hefur ráðið Alex Neil sem nýjan knattspyrnustjóra félagsins en Norwich situr í sjöunda sæti ensku Championship-deildarinnar.

Þessi 33 ára Skoti kemur í staðinn fyrir Neil Adams sem sagði upp störfum á mánudaginn.
Neil yfirgefur Hamilton sem er í þriðja sæti skosku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Aberdeen, eftir að hafa stýrt liðinu upp í deildina síðasta tímabil.

„Það er leiðinlegt að yfirgefa frábært félag eins og Hamilton sem hefur verið stór hluti af mínu lífi svona lengi. En þetta er tækifæri sem ekki var hægt að hafna,\" segir Neil sem var spilandi stjóri Hamilton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.