Fotbolti.net
09.01.15 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Rúrik Andri í Fram (Staðfest)

Rúrik Andri í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Fram hefur fengið kant og sóknarmanninn Rúrik Andra Þorfinsson til liðs við sig.

Rúrik var á sínum tíma í yngri flokkum Fram og sumarið 2009 lék hann einn leik með liðinu í efstu deild.

Eftir það fór Rúrik í Fylki þar sem hann spilaði 17 leiki árið 2011 og fjóra leiki árið 2012.
Undanfarin tvö sumur hefur Rúrik verið að glíma við meiðsli og því lítið spilað. Sumarið 2013 spilaði Rúrik ekkert en í fyrrasumar skipti hann yfir í Augnablik þar sem hann spilaði einn leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.