Fotbolti.net
09.01.15 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Sigurður Þórir tekur við Skallagrími (Staðfest)

Frá undirskriftinni.

Frá undirskriftinni.

Canon

Mynd: Skallagrímur

Sigurður Þórir Þorsteinsson hefur verið ráðinn þjálfari Skallagríms í 4. deild karla.
Sigurður er öllum hnútum kunnur í knattspyrnunni en þjálfaraferill hans spannar rúm 30 ár.

Hann hefur starfað sem meistaraflokksþjálfari hjá ÍR, Breiðablik og Aftureldingu, yfirþjálfari hjá Fylki og þá hefur hann verið formaður knattspyrnuþjálfarafélags Íslands í áraraðir.

,,Knattspyrnudeild Skallagríms lítur á ráðningu Sigurðar sem metnaðarfullt skref fyrir knattspyrnuna hér í Borgarnesi og eru miklar vonir bundnar við hann. Knattspyrnudeild Skallagríms býður Sigurð velkominn til starfa,\" segir á heimasíðu Skallagríms.

Borgnesingar mættu aftur til leiks í 4. deildinni árið 2013 eftir að hafa tekið sér frí sumarið 2012.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.