Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 09. janúar 2021 11:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Derby spilar á unglingaliðunum - Frændi Gerrard byrjar
Bobby Duncan er fyrrum leikmaður Liverpool.
Bobby Duncan er fyrrum leikmaður Liverpool.
Mynd: Getty Images
Klukkan 12:15 verður flautað til leiks í Chorley þar sem heimamenn taka á móti Derby County.

Derby er í Championship-deildinni, næst efstu deild enska fótboltans, og Chorley er í sjöttu efstu deild.

Derby mætir ekki með leikmenn úr aðalliði sínu í þennan leik vegna hópsmits hjá félaginu. Wayne Rooney, stjóri Derby, verður ekki á hliðarlínunni vegna þess.

Eins og Aston Villa í gær, þá mætir Derby með leikmenn úr U23 og U18 liðum sínum í þennan leik.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig þessi leikur fer og hvort ungir leikmenn Derby nái að leggja Chorley að velli. Í byrjunarliði Derby er meðal annars Bobby Duncan, frændi Steven Gerrard, sem yfirgaf Liverpool eftir mikið fjölmiðlafár árið 2019.

Sjá einnig:
Bobby Duncan brjálaður út í Liverpool - Ekki farið úr húsi í fjóra daga
Bobby Duncan: Ég vil bara spila fótbolta
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner