Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 09. janúar 2021 08:30
Aksentije Milisic
Pereira íhugar að yfirgefa Lazio
Mynd: Getty Images
Andreas Pereira, leikmaður Manchester United, er á láni hjá ítalska liðinu Lazio en þar hefur hann lítið fengið að spila.

Pereira hefur einungis spilað 11 leiki fyrir Lazio á þessari leiktíð og skorað eitt mark. Þá hefur hann oftast komið inn af bekknum.

Pereira er 25 ára gamall og á að baki 45 leiki fyrir Manchester United en hann hefur verið í eigu félagsins frá árinu 2011 og farið á nokkur lán.

Hann spilaði fyrir Granada á Spáni á tímabilinu 2016-17 og hjá Valencia 2017-18. Nú er spurning hvort hann gæti verið að fara á enn eitt lánið áður en mánuðurinn verður úti.
Athugasemdir
banner
banner
banner