30.09.26 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Einn þeirra sem ég ber mesta virðingu fyrir í heiminum"

Heimir Hallgrímsson.

Mynd: EPA

Finn Azaz í leik með Írlandi.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson.

Mynd: EPA
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag fyrir leik Íra gegn Austurríki í Þjóðadeildinni. Einbeiting írskra blaðamanna var þó aðallega á seinni leikinn gegn Ísrael sem er næsti leikur þar á eftir.
Það hefur verið gríðarlega mikið fjallað um fyrri leik Írlands og Ísrael sem lærisveinar Heimis unnu 3-0. Það var mikil óánægja með leikinn í Írlandi út af árásum Ísraelsmanna á Palestínu. Leikmenn Írlands tóku ekki í höndina á leikmönnum Ísraels fyrir leik og litu niður þegar þjóðsöngur þeirra var spilaður, en ákváðu samt að spila leikinn.

TENGT EFNI
Sagður íhuga að hætta að spila með Írlandi eftir síðustu daga
Mikil umræða hefur verið um Finn Azaz, leikmann Írlands, í tengslum við leikina þar sem móðir hans er frá Ísrael. Þá hefur komið fram að amma hans hafi áður starfað sem hershöfðingi í ísraelska hernum.
Azaz spilaði ekki fyrri leikinn gegn Ísrael, var allan tímann á varamannabekknum. Heimir sagðist hafa tekið þá ákvörðun þó Azaz hafi sjálfur verið tilbúinn að spila.
Írska landsliðið hélt fund fyrir leikinn þar sem leikmenn ræddu hvort þeir ættu að taka þátt í leiknum. Eftir um fjögurra klukkustunda fundarhöld kaus meirihluti leikmanna að spila. Azaz var sagður hafa haldið ræðu á þeim fundi en í írskum fjölmiðlum hefur verið skrifað um það að hann muni mögulega hætta í írska landsliðinu eftir þetta verkefni þó hann sé bara 26 ára gamall. Þetta hafi allt saman tekið mikið á hann, en Heimir var spurður út í leikmanninn á fréttamannafundi í dag.
„Ég vona að þið skiljið að við einbeitum okkur að þessum leik og þurfum að halda einbeitingunni. Finn hefur sýnt ótrúlega tilfinningalega stjórn og meðvitund. Í mínum huga er hann einn af þeim einstaklingum sem ég ber mesta virðingu fyrir, miðað við hvernig hann hefur tekist á við þetta allt. Þetta snýst um að vera hluti af liðinu," sagði Heimir.
„Þú þarft að hlusta á allar skoðanir. Finn nýtur gríðarlegrar virðingar innan leikmannahópsins og hefur lagt sig allan fram um að vera hluti af þessu liði. Hann er einn þeirra einstaklinga sem ég ber mesta virðingu fyrir í heiminum," bætti íslenski þjálfarinn við.