Fotbolti.net
30.09.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Van Hecke snýr aftur til Spurs

Van Hecke snýr aftur til Spurs
Canon

Mynd: EPA

Varnarmaðurinn Jan Paul van Hecke er snúinn aftur til Tottenham eftir að hafa meiðst á fæti með hollenska landsliðinu.
Nefnir veikasta hlekkinn í liðinu - „Vonlaust dæmi“
TENGT EFNI

Nefnir veikasta hlekkinn í liðinu - „Vonlaust dæmi“

Van Hecke var í byrjunarliðinu í 1-1 jafntefli Hollands gegn Þýskalandi í Amsterdam og 2-1 sigrinum á Serbíu í Belgrad, en hann heldur nú aftur til London í meðferð.

Van Hecke tók þátt í æfingu hollenska liðsins á miðvikudag en hætti snemma og hefur nú yfirgefið æfingabúðirnar. Aðrir í hópnum hafa síðan haldið til Þessalóníku, þar sem Holland mætir Grikklandi á fimmtudagskvöld í Þjóðadeildinni.

Síðan Van Hecke gekk til liðs við Tottenham frá Brighton & Hove Albion fyrir 52 milljónir punda í sumar hefur hann verið fastamaður í liðinu í ensku úrvalsdeildinni og spilað allar mínúturnar í fyrstu fimm leikjum liðsins. Næsti leikur liðsin er útileikur gegn Manchester United þann 10. október.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.