Fotbolti.net
30.09.26 - 09:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Manchester City hótaði að kæra okkur"

Úr leik hjá Man City á þessu tímabili.

Úr leik hjá Man City á þessu tímabili.

Canon

Mynd: EPA

Ian Herbert, íþróttafréttamaður á Daily Mail, ritaði áhugaverða færslu í gær eftir að enska úrvalsdeildin birti dómsorð í máli Manchester CIty.

Manchester City var dæmt sekt í kærumálinu gegn ensku úrvalsdeildinni eftir margra ára rannsókn á fjármálum félagsins.
Gervisamningar fyrir 900 milljónir punda
TENGT EFNI

Gervisamningar fyrir 900 milljónir punda

Málið nær yfir árin 2009 til 2018 og snýr meðal annars að því að City hafi skilað röngum upplýsingum um fjárhagsstöðu sína, blásið upp tekjur með gervisamningum við styrktaraðila og brotið reglur ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA um fjárhag. Þá var félagið einnig fundið sekt um að hafa ekki sýnt nægilega mikinn samstarfsvilja í rannsókn deildarinnar.

Eftir að enska úrvalsdeildin birti dómsorðin þá skrifaði Herbert færslu á X um málið og rifjaði upp grein sem hann skrifaði árið 2018 fyrir Independent

„Þegar ég skrifaði um þetta svindl með ímyndarétt fyrir The Independent árið 2018 hótaði Manchester City að kæra okkur og krafðist þess að ég birti persónulega afsökunarbeiðni á þessum vettvangi," skrifar Herbert.

„Við stóðum fast á okkar. City kærði okkur ekki. Nú hefur úrvalsdeildin staðfest að um svindl var að ræða."

Hann heldur áfram og skrifar: „Orðið 'svindl' kemur fimm sinnum fyrir í afdráttarlausri og harðorðri niðurstöðu úrvalsdeildarinnar."

Greinin sem Herbert skrifaði um fyrir Independent fjallar um það hvernig Manchester City seldi ímyndarétt leikmanna sinna fyrir 24,5 milljónir punda til fyrirtækisins Fordham Sports Image Rights Ltd og taldi þá upphæð fram sem tekjur til að hjálpa félaginu að uppfylla fjárhagsreglur UEFA.

The Independent komst hins vegar að því að Fordham tengdist City mjög nánum böndum, meðal annars voru yfirlögfræðingur félagsins og stjórnarmaður skráðir sem stjórnarmenn fyrirtækisins.

Í dómnum sem var birtur í gær var fjallað um samning Fordham og Manchester City og var fjallað um hann sem „gervisamning" sem eigendur Man City hefðu fjármagnað og þannig blásið upp tekjur félagsins.

Fyrir utan Etihad-leikvanginn, heimavöll Manchester City.

Fyrir utan Etihad-leikvanginn, heimavöll Manchester City.

Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildin staðfesti niðurstöðuna í máli Manchester City í gær.

Enska úrvalsdeildin staðfesti niðurstöðuna í máli Manchester City í gær.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.