Blikar með bakið upp við vegg í Póllandi: Tvær breytingar á byrjunarliðinu


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik mætir Czarni í seinni leik liðanna í annarri umferð Evrópubikars kvenna í Póllandi í dag. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og hafa byrjunarliðin verið opinberuð.
Ian Jeffs gerir tvær breytingar á liði Breiðabliks frá fyrri leiknum. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Kristín Vala Stefánsdóttir koma inn í byrjunarliðið fyrir Þórdísi Elvu Ágústsdóttur, sem tekur sæti á bekknum, og Líf van Bemmel, sem er í leikbanni eftir rauða spjaldið á Eikarvellinum.
Czarni stillir upp nákvæmlega sama byrjunarliði og vann 6–2 sigur á Eikarvellinum. Klaudia Milek, sem skoraði fjögur mörk í fyrri leiknum, leiðir sókn pólsku meistaranna.
Breiðablik þarf að vinna með fjórum mörkum til að knýja fram framlengingu en fimm marka sigur myndi tryggja Blikum sæti í næstu umferð eftir venjulegan leiktíma.
Byrjunarlið Czarni
- 1. Anna Palinska (m)
- 2. Oliwia Lapinska
- 7. Klaudia Milek
- 8. Natalia Chudzik
- 9. Patrycja Sarapata
- 14. Zofia Burzan
- 17. Nikol Kaletka
- 19. Karlina Miksone
- 27. Daria Kurzawa
- 70. Zofia Buszewska
- 84. Oliwia Katowicz
Byrjunarlið Breiðablik
- 12. Taylor Kane (m)
- 3. Elísa Viðarsdóttir
- 4. Elín Helena Karlsdóttir
- 7. Agla María Albertsdóttir (f)
- 8. Katelyn Duong
- 11. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
- 14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
- 17. Karitas Tómasdóttir
- 18. Kristín Dís Árnadóttir
- 29. Sunna Rún Sigurðardóttir
- 52. Kristín Vala Stefánsdóttir


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
