30.09.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi bestur í september - „Eins og hershöfðingi"

Gylfi í leik gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi reynir hér að ná boltanum af Arnóri Ingva Traustasyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi í leik gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valnefnd Fótbolta.net hefur valið Gylfa Þór Sigurðsson sem leikmann mánaðarins í íslenska boltanum, annan mánuðinn í röð. Gylfi hefur átt frábært tímabil fyrir Íslandsmeistarana og vel að þessum titli kominn.
Gylfi steig upp þegar mest á reyndi og sýndi sína bestu frammistöðu þegar Víkingur tryggði sér sigur í deildinni á Meistaravöllum í Vesturbæ fyrir landsleikjahléið langa.

TENGT EFNI
Af hverju Gylfi er leikmaður ársins
Hann var reyndar frábær í báðum leikjunum gegn KR og það gerir hann að leikmanni mánaðarins í september hér á Fótbolta.net.
Í 2-1 sigrinum á KR tryggði Víkingur sér Íslandsmeistaratitilinn og Gylfi var valinn maður leiksins. Hann vann boltann átta sinnum í leiknum og tapaði honum aðeins einu sinni. Það var lýsandi fyrir hans frammistöðu í sumar.
„Mögnuð frammistaða. Gylfi var frábær varnarlega og sóknarlega í þessum leik. Ég get ekki talið hversu oft hann bjargaði Víkingum eftir mistök. Hann stjórnaði einnig miðjunni eins og hershöfðingi,“ skrifaði Andri Stefánsson í leikskýrslu sinni á Fótbolta.net og kannski er það einmitt stærsta breytingin á Gylfa í sumar; hann er ekki bara að skapa og skora, hann er farinn að stjórna leikjum gjörsamlega án boltans líka.
Í 2-1 sigrinum á KR tryggði Víkingur sér Íslandsmeistaratitilinn og Gylfi var valinn maður leiksins. Hann vann boltann átta sinnum í leiknum og tapaði honum aðeins einu sinni. Það var lýsandi fyrir hans frammistöðu í sumar.
„Mögnuð frammistaða. Gylfi var frábær varnarlega og sóknarlega í þessum leik. Ég get ekki talið hversu oft hann bjargaði Víkingum eftir mistök. Hann stjórnaði einnig miðjunni eins og hershöfðingi,“ skrifaði Andri Stefánsson í leikskýrslu sinni á Fótbolta.net og kannski er það einmitt stærsta breytingin á Gylfa í sumar; hann er ekki bara að skapa og skora, hann er farinn að stjórna leikjum gjörsamlega án boltans líka.

Gylfi reynir hér að ná boltanum af Arnóri Ingva Traustasyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

TENGT EFNI
Gylfi bestur í ágúst og FH-ingur í öðru sæti

TENGT EFNI
Bestur í júlí - Átti svo sannarlega skilið að fá þennan lestur frá Óskari

TENGT EFNI
Elías Már valinn leikmaður júnímánaðar

TENGT EFNI
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“

TENGT EFNI