Leikmenn Cambridge United voru hressir og kátir eftir að þeir slógu Newcastle úr leik í enska FA-bikarnum í gær.
Newcastle stillti upp sterku liði en ævintýrin gerast svo sannarlega í bikarnum. Joe Ironside gerði eina markið í leiknum á 57. mínútu fyrir Cambridge.
Eftir leikinn þá ákváðu leikmenn Cambridge að henda í fagn sem Cristiano Ronaldo hefur gert vinsælt. Ronaldo byrjaði að hoppa upp í loft og öskra 'Siu' þegar hann var leikmaður Real Madrid og gerir hann það enn í dag.
Leikmenn Cambridge léku sama leik og Ronaldo eftir sigurinn í gær, eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan.
Cambridge er í ensku C-deildinni og situr þar í 16. sæti þessa stundina.
Que Siurá, Siurá. #CamUTD pic.twitter.com/VASbA63SdC
— Cambridge United FC (@CambridgeUtdFC) January 9, 2022
Athugasemdir