09.02.15 - 13:27
Magnús Már Einarsson
Guðmann í FH (Staðfest)

Guðmann í leik með FH sumarið 2013.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Guðmann í leik með FH sumarið 2013.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Varnarmaðurinn öflugi Guðmann Þórisson hefur gert þriggja ára samning við FH. Guðmann þekkir vel til hjá félaginu eftir að hafa spilað þar 2012 og 2013.
,,Ég kunni vel við mig seinast í FH og metnaðurinn hjá félaginu er mikill. Ég vildi taka þátt í því, framtíðin er björt,“ sagði Guðmann við 433.is.
Guðmann er þriðji leikmaðurinn sem FH fær á innan við viku en áður höfðu Bjarni Þór Viðarsson og Jeremy Serwy samið við félagið.
,,Við erum gríðarlega ánægðir með að fá Guðmann aftur í Kaplakrika. Guðmann spilaði virkilega vel þessi tvö ár sem hann var hjá félaginu, áður en að hann hélt aftur út í atvinnumennsku,\" segir Heimir Guðjónsson þjálfari FH.
Eftir góða frammistöðu sumarið 2013 fór Guðmann til Mjallby í sænsku úrvalsdeildinni.
Mjallby féll úr sænsku úrvalsdeildinni síðastliðið haust og í kjölfarið fékk Guðmann leyfi til að fara frítt frá félaginu.
Guðmann er 28 ára gamall en hann er uppalinn hjá Breiðabliki. Þá spilaði hann í Noregi áður en hann gekk í raðir FH.