Fotbolti.net
09.03.15 - 13:07
Magnús Már Einarsson

Mees Siers í ÍBV (Staðfest)

Mees Siers í ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍBV hefur samið við miðjumanninn Mees Siers en hann skrifaði undi hjá félaginu nú rétt í þessu.

Samningur Mees gildir til tveggja ára.
Mees er 27 ára gamall Hollendingur sem á að baki landsleiki með yngri landsliðum Hollands. Mees getur bæði leikið í stöðu bakvarðar sem og á miðsvæðinu, en er aðallega hugsaður sem miðjumaður hjá ÍBV.

Hann á að baki yfir 100 leiki í hollensku 1. deildinni með AGOVV Apeldoorn og Helmond Sport.

Mees gerði stuttan samning við Sönderjyske í dönsku úrvalsdeildinni síðastliðið haust og lék með þeim til síðustu áramóta þar sem hann kom við sögu í þremur leikjum.

,,Við erum feykilega ánægðir með að fá Mees til okkar og væntum mikils af honum,\" sagði Jóhannes Harðarson þjálfari ÍBV á fréttamannafundi í dag.

Eyjamenn eru að styrkja leikmannahópinn fyrir átök sumarsins. Þeir fengu varnarmennina Avni Pepa og Tom Even Skogsrud í sínar raðir á dögunum og undanfarna daga hefur enski miðjumaðurinn Jonathan Barden verið á reynslu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.