Heimild: 433.is
Daníel Hafsteinsson, leikmaður Helsingborg í Svíþjóð, er á leið til FH á láni en þetta kemur fram á 433.is í kvöld.
Daníel, sem er fæddur árið 1999, gekk til liðs við Helsingborg frá KA á síðasta ári en hann lék sex leiki í sænsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Hann er nú á leið til FH á láni og mun hefja æfingar með liðinu á morgun eins og kemur í frétt 433.is
Stjarnan vildi einnig fá Daníel á láni en hann ákvað að velja FH en Valur hafði þá ekki áhuga á að fá hann á þessum tímapunkti.
Daníel hefur spilað 19 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
Athugasemdir