Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. mars 2021 06:00
Auglýsingar
TM mót Stjörnunnar 2021
Mynd: Aðsend
TM mót Stjörnunnar fer fram á knattspyrnusvæði Stjörnunnar í Garðabæ 10.- 11. apríl og 17.- 18. apríl.

Keppt er í 6. 7. og 8.flokki hjá strákum og stelpum. Um 3900 þátttakendur voru á síðasta móti (árinu 2019) og er mikill hugur hjá skipuleggjendum mótsins að TM-Mót Stjörnunnar 2021 verði enn glæsilegra í ár.

Þess má geta að mótið varð tíu ára í fyrra og verða því enn veglegri þátttökuverðlaun í ár.

- Spilaður er 5-manna bolti í öllum flokkum og er spiltími hvers liðs að lágmarki klukkutími.
- Spilað er eftir nýjum reglum, þar sem ekki eru tekin innköst heldur er boltanum spyrnt / rekið inn á völlinn. - Leikirnir eru 12 mínútur með þremur mínútum á milli leikja.
- Ein leikklukka
- Viðvera hvers liðs ekki meir en tvær klukkustundir
- Úrslit leikja ekki skráð
- Fjórir styrkleikaflokkar eru í kvennaflokkunum en sex styrkleikaflokkar hjá karlaflokkunum.

Leikið verður á eftirfarandi dögum:
6.flokkur karla – 10.apríl
6.- 7.flokkur kvenna – 11.apríl
7.flokkur karla– 17.apríl
8.flokkur karla og kvenna – 18.apríl

Þátttökugjald er 2.750 krónur og fylgja vegleg þátttökuverðlaun, auk þess sem þátttakendur fá að spreyta sig á hinum ýmsum þrautum og fara í liðsmyndatöku.

Skráning er hafin hjá Davíð Sævarssyni framkvæmdastjóra TM mótsins á póstfanginu [email protected].

ATH! Sóttvarnarsjónarmið verða hafðar að leiðarljósi. Frekari upplýsingar þegar nær dregur að mótinu.

Facebook síða mótsins:
Athugasemdir
banner
banner
banner