Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 22:25
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Bowen og Thiago með tvennur - Ouattara skúrkurinn
Mynd: EPA
Mynd: Brentford
Mynd: EPA
Mynd: EPA
West Ham 2 - 2 Brentford
1-0 Jarrod Bowen ('19 )
1-1 Igor Thiago ('28 )
2-1 Jarrod Bowen ('34 , víti)
2-2 Igor Thiago ('81 , víti)
(5-3 í vítaspyrnukeppni)

West Ham United og Brentford áttust við í gríðarlega spennandi slag í enska bikarnum í kvöld.

Heimamenn í West Ham gerðu mikið af breytingum á byrjunarliði sínu á meðan Brentford stillti upp afar sterku liði.

Jarrod Bowen er einn af fjórum leikmönnum Hamranna sem héldu sæti sínu í byrjunarliðinu á milli leikja og skoraði hann fyrsta markið í kvöld á 19. mínútu eftir hornspyrnu. Bowen er með mikið markanef og þefaði þetta færi upp þar sem hann var fyrstur til boltans eftir skallaeinvígi innan teigs.

Gestirnir voru þó ekki lengi að jafna og fær Igor Thiago markið skráð á sig. Nathan Collins skallaði boltann í átt að marki eftir fyrirgjöf frá Dango Ouattara og fékk Thiago boltann óvart í sig. Snertingin frá Thiago nægði til að trufla Alphonse Areola markvörð West Ham svo boltinn endaði í netinu. Atvikið var skoðað gaumgæfilega í VAR-herberginu en boltinn fór hvorki í hendina á Thiago né var Brasilíumaðurinn markaóði rangstæður.

Það var mikið fjör á London Stadium þar sem bæði lið fengu góð færi í afar opnum leik og tókst Bowen að endurheimta forystu heimamanna með marki úr vítaspyrnu eftir klaufalegt brot hjá Michael Kayode innan vítateigs.

Staðan var 2-1 eftir afar líflegan fyrri hálfleik en síðari hálfleikurinn byrjaði rólega. Hamrarnir vörðust vel og gerðu sitt besta til að hægja á leiknum en það dugði ekki til útaf því að Kayode lét fyrirgefa sér mistökin frá því í fyrri hálfleik með að fiska vítaspyrnu á 81. mínútu.

Kayode ætlaði að skalla fyrirgjöf í átt að marki en Crysencio Summerville stuggaði við honum í miðju stökki. Kayode náði því ekki til boltans og endaði kylliflatur inni í markinu og heimtaði vítaspyrnu, sem hann fékk. Igor Thiago skoraði af vítapunktinum með föstu skoti og tókst þar með að knýja leikinn í framlengingu.

Þegar í framlengingu var komið var ekki mikið eftir á tanki leikmanna. Það var lítið um færi og meiddist Summerville en fékk ekki skiptingu af velli útaf því að skiptingarnar sex voru búnar.

Meiddur Summerville neyddist því til að klára leikinn en hvorugu liði tókst að skora í framlengingunni, svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni.

Þar reyndist Dango Ouattara skúrkurinn fyrir hörmulega tilraun til að taka Panenka vítaspyrnu. Areola varði auðveldlega og skoruðu Hamrarnir úr öllum sínum spyrnum til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum.

West Ham tekur á móti Leeds United í næstu umferð.

   09.03.2026 19:28
Dregið í enska bikarnum: Man City mætir Liverpool



Dango Ouattara's penanka penalty miss against West Ham United. He was the only player to miss as Brentford exit the FA Cup
by
u/notaghostofreddit in
soccer

Athugasemdir
banner
banner