Joan Laporta, forseti Barcelona, er búinn að svara opinberum ummælum sem Xavi Hernández lét falla í aðdraganda forsetakosninga stórveldisins.
Xavi er goðsögn hjá Barcelona eftir að hafa verið lykilmaður, fyrirliði og þjálfari aðalliðsins á ferli sínum hingað til. Hann gagnrýndi Laporta harkalega í viðtali í gær, aðeins viku fyrir forsetakosningar félagsins.
09.03.2026 07:00
Sakar Laporta um lygar: Kom í veg fyrir endurkomu Messi
„Þessi ummæli særðu mig en þau létu mig hugsa til Hansi Flick (núverandi þjálfara Barcelona). Það er mjög erfitt að vera forseti Barcelona útaf því að starfinu fylgja erfiðar ákvarðanir. Ég sá að við myndum halda áfram að tapa með Xavi við stjórnvölinn og þess vegna tók ég þessa ákvörðun að ráða Flick í staðinn," sagði Laporta í kappræðum í dag fyrir forsetakosningarnar.
„Það var rétt ákvörðun útaf því að sömu leikmenn sem voru að tapa undir stjórn Xavi eru núna að vinna undir stjórn Flick. Ég skil að það særir hann."
Xavi sakaði Laporta um að hafa lokað á endurkomu Lionel Messi til Barcelona með að dreifa lygasögum, en Laporta segir það ekki vera rétt.
„Varðandi Messi þá gátum við ekki samið við hann 2021 af fjárhagsástæðum en 2023 tóku feðgarnir ákvörðun um að fara frekar til Miami. Jorge Messi kom heim til mín og sagði mér að þeir vildu ekki takast á við alla pressuna sem fylgir því að spila fyrir Barcelona."
Í viðtalinu sínu sagði Xavi einnig að Alejandro Echevarría, ráðgjafi Laporta, væri maðurinn sem stjórnaði Barcelona í raun og veru á bakvið tjöldin. Laporta kallaði þessi ummæli lygar og rógburð og sakaði Xavi um að starfa sem tól fyrir Víctor Font, andstæðing sinn í forsetakosningunum.
„Alejandro Echevarría er einstaklingur sem ég reiði mig mikið á, hann sinnir mjög mikilvægu hlutverki innan félagsins. Það særir mig að Xavi sé að láta nota sig til að dreifa lygum og rógburði með þessum hætti. Mér þykir leitt að hann hafi notað nafn Alejandro til að særa mig, sérstaklega í ljósi þess að Alejandro er einn af þeim sem varði Xavi allt þar til í lokin og talaði gegn því að hann yrði rekinn."
Laporta ræddi ýmislegt í kappræðunum, meðal annars þegar Barcelona hafnaði 250 milljón evra tilboði frá PSG.
„Eitt af því sem ég er stoltastur af frá síðustu árum er þegar við höfnuðum 250 milljónum evra frá PSG fyrir Lamine Yamal. Ekki gleyma að hann er samningsbundinn til 2030."
20.02.2026 17:40
Laporta: Reiðubúnir til að kaupa stjörnuleikmann í sumar
Athugasemdir



