Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 09. apríl 2020 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Labbadia tekur við Hertha af Klinsmann (Staðfest)
Bruno Labbadia hefur verið ráðinn sem þjálfari Hertha Berlín í þýsku úrvalsdeildinni. Hann tekur við starfinu af Jurgen Klinsmann sem hætti í febrúar eftir 76 daga í starfi.

Alexander Nouri stýrði Hertha í leikjunum áður en hlé var gert á þýsku úrvalsdeildinni vegna kórónuveirunnar. Hertha ætlaði sér að ráða nýjan þjálfara í sumar, en þar sem frí hefur verið í deildinni hefur Hertha flýtt ráðningunni.

Labbadia mun formlega taka við 13. apríl, en stefnt er á að hefja deildina aftur í Þýskalandi í byrjun næsta mánaðar. Nokkur lið hafa hafið æfingar þar í landi í litlum hópum og í samráði við tilmæli þýskra stjórnvalda.

Labbadia er 54 ára gamall og var síðast við stjórnvölinn hjá Wolfsburg.

Hertha var í 13. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar þegar deildin var stöðvuð í síðasta mánuði.


Athugasemdir