Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 09. apríl 2020 09:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Southampton fyrst félaga til að semja um launalækkanir leikmanna
Southampton hefur tilkynnt að leikmenn liðsins og þjálfarar hafi samþykkt að taka á sig launalækkun og er félagið því það fyrsta í úrvalsdeildinni til að ná samkomulagi um slíkt.

Þetta er gert til að hjálpa til við að greiða laun starfólks félagsins sem eru ekki leikmenn.

Leikmenn, stjórinn Ralph Hasenhuttl og hans þjálfarateymi hafa samþykkt að lækka sig í launum í apríl, maí og júní.

Í tilkynningu frá Southampton segir að tímabilið sem þessi skerðing gildir geti lengst ef þess þarf en upplýst yrði um það síðar.
Athugasemdir
banner