Fotbolti.net
09.05.26 - 00:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jákvæðar fréttir af Úlfi sem borinn var af velli

Jákvæðar fréttir af Úlfi sem borinn var af velli
Canon

Mynd: Skjáskot/SÝN Sport

Úlfur Ágúst Björnsson, sóknarmaður FH, var borinn af velli undir lok leiks liðsins gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld.

Meiðslin litu alls ekki vel út og virtist Úlfur finna mikið til.
Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig
TENGT EFNI

Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 3 FH
Fótbolti.net ræddi við hann í kvöld þar sem hann var að ljúka heimsókn á slysamóttökuna.

„Það er ekkert brot, það er það sem er vitað á þessum tímapunkti, þannig ég er léttur," segir Úlfur sem var ekki kominn heim þegar Fótbolti.net hafði samband. Úlfur lá eftir inn á vítateig þegar FH eftir baráttu inn á teignum.

„Ég veit ekki hvað tekur við, ég er búinn í röntgen og það kom vel út. Ég fer örugglega í segulómun til að skoða ökklann betur," segir Úlfur.

Lokatölur á Kópavogsvelli urðu 3-3, Úlfur Ágúst lagði upp þriðja mark FH fyrir Gils Gíslason en var svo brotlegur þegar Breiðablik fékk vítaspyrnu seinna í leiknum og jafnaði Höskuldur Gunnlaugsson í 3-3 af vítapunktinum.
Jákvæðar fréttir af Úlfi sem borinn var af velli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.