SKÝRSLAN: Sex marka jafntefli í Kópavogi
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik voru fremur betri í fyrri hálfleik og maður hélt þegar það var flautað til hálfleiks að þetta myndi jafnvel verða enn eini tapleikur FH á tímabilinu en svo var ekki! FH skorar 3 mörk á rúmum 20 mínútum og gjörbreyta stefnunni. En Höskuldur var öruggur á punktinum fyrir Blika að jafna þetta.
Bestu leikmenn
1. Gils Gíslason
Gils sýndi frábæran leik í da með því að skora þessi tvö mörk og opna markareikninginn sinn í Bestu Deildinni í ár.
2. Ágúst Orri Þorsteinsson
Ágúst var frábær í þessum leik og var út um allt. Góður leikur hjá honum.
Atvikið
Það ætlaði allt að verða vitlaust þegar FH komst yfir á 69. mínútu, og hvað þá þegar Höskuldur skorar úr vítinu sínu til að jafna metin á 78. mínútu! Margt hægt að velja út úr þessum frábæra leik!
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik situr í 4. sæti með 12 stig. Þeir eiga leik við Val í næstu umferð á Hlíðarenda.
FH situr enn í 11. sæti með aðeins tvö stig. Þeir eiga leik gegn KA á Kaplakrika í næstu umferð.
Vondur dagur
Enginn leikmaður átti sérstaklega vondan dag. Kannski á Úlf Ágúst fyrir það að brjóta af sér í vítateignum til að gefa Breiðablik vítaspyrnu. Sama er hægt að segja um Ívar Örn sem gaf FH vítaspyrnu, en hann var á gulu spjaldi fyrir það og var tekinn útaf stuttu eftir vítaspyrnuna.
Dómarinn - 8
Gunnar Oddur flottur að vana, ekkert mikið hægt að kvarta undan þessari dómgæslu




