Fotbolti.net
09.06.16 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Neil Lennon nýr stjóri Hibernian (Staðfest)

Neil Lennon gerði garðinn frægan sem leikmaður og stjóri Celtic.

Neil Lennon gerði garðinn frægan sem leikmaður og stjóri Celtic.

Canon

Mynd: Getty Images

Neil Lennon er búinn að taka við stjórn á skoska félagsliðinu Hibernian eftir að hafa verið látinn hætta við stjórnvölinn hjá Bolton fyrr í vor.

Lennon hefur verið afar umdeildur á síðustu árum, bæði vegna slæms gengis innan vallar með Bolton og vegna hegðunar hans utan vallar sem hefur nokkrum sinnum komið honum í klandur.
Hibernian vantaði stjóra eftir að Alan Stubbs yfirgaf félagið til að taka við Rotherham á dögunum.

Hibernian vann skoska bikarinn og tekur þátt í Evrópudeildinni í haust þrátt fyrir að spila í skosku B-deildinni. Lennon á það verkefni fyrir höndum sér að koma Hibernian upp í deild þeirra bestu í Skotlandi eftir þriggja ára veru í B-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.