09.06.20 - 14:45
Fótbolti.net
Líklegt byrjunarlið Breiðabliks í sumar

Breiðabliki er spáð 3. sæti í sumar.

Mynd: Eyþór Árnason

Elfar Freyr Helgason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thomas Mikkelsen fagnar marki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðabliki er spáð 3. sæti í sumar.

Mynd: Eyþór Árnason
Fótbolti.net spáir Breiðabliki 3. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Blikar mæta Gróttu á heimavelli í fyrstu umferðinni á sunnudaginn. Hér að neðan má sjá líklegt byrjunarlið Breiðabliks í sumar.

Anton Ari Einarsson ver mark Breiðabliks í sumar en hann kom frá Val síðastliðið haust. Reynsluboltinn Gunnleifur Gunnleifsson er varamarkvörður en hann kom inn í þjálfarateymi Breiðabliks í vetur.
Óskar Hrafn hefur spilað mest með þriggja manna vörn hjá Breiðabliki og kalla má leikkerfið 3-6-1. Damir Muminovic og Elfar Freyr Helgason eru á sínum stað í vörninni líkt og undanfarin ár. Viktor Örn Margeirsson hefur ekki verið í síðustu leikjum vegna meiðsla. Róbert Orri Þorkelsson og Davíð Ingvarsson koma til greina vinstra megin í vörnina. Arnar Sveinn Geirsson er einnig byrjaður að spila aftur eftir langa fjarveru vegna meiðsla.
Höskuldur Gunnlaugsson er fyrirliði Blika og hann hefur mest spilað sem vinstri vængbakvörður á undirbúningstímabilinu. Hægra megin hefur Viktor Karl Einarsson spilað mest. Kwame Quee getur einnig spilað á vængjunum og í fremstu stöðunum en hann hefur skorað í tveimur síðustu æfingaleikjunum fyrir mót.
Á miðjunni er gífurleg samkeppni um sæti í byrjunarliðinu. Guðjón Pétur Lýðsson minnti vel á sig með marki og stoðsendingu gegn HK um síðustu helgi. Gísli Eyjólfsson og Oliver Sigurjónsson hafa einnig spilað mikið á miðjunni sem og Andri Rafn Yeoman. Alexander Helgi Sigurðarson gerir líka tilkall í stöðu á miðjunni.
Thomas Mikkelsen hefur verið drjúgur í fremstu víglínu Blika undanfarin ár og hann verður áfram í lykilhlutverki. Fyrir aftan hann er líklegt að Brynólfur Andersen Willumsson byrji. Kristinn Steindórsson kom aftur til uppeldisfélagsins Breiðabliks frá FH í vetur og hann getur líka spilað í fremstu stöðunum.
Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 3. sæti: Breiðablik

Elfar Freyr Helgason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thomas Mikkelsen fagnar marki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
