Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 09. júní 2021 11:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chelsea búið að jafna tilboð PSG í Hakimi - Með ása í ermi
Hakimi
Hakimi
Mynd: Getty Images
Chelsea vill krækja í Achraf Hakimi frá Inter. Það er Sky á Ítalíu sem greinir frá því að Chelsea hafi boðið 60 milljónir evra í bakvörðinn og það sé það sama og PSG hafi boðið í hann.

Inter er sagt vera opnari fyrir því að selja leikmanninn til Chelsea heldur en PSG þar sem Inter hefur áhuga á að fá Emerson og Andreas Christensen frá Chelsea.

Inter vill fá Emerson á láni en Chelsea vill selja hann.

Ekki er víst hvort Inter muni samþykkja þessi tilboð því félagið er sagt vilja fá 80 milljónir evra fyrir Hakimi.

Hakimi, sem bæði getur spilað á kantinum og í bakverðinum, skoraði sjö mörk í deildinni og lagði upp tíu þegar Inter varð Ítalíumeistari.
Athugasemdir
banner