Solbakken og Hangeland mjög ósáttir með hegðun Skota

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Norðmenn eru ósáttir með hegðun Skota í kringum lokaðan æfingaleik sem þjóðirnar ætluðu að spila í undirbúningi sínum fyrir heimsmeistaramótið.
Ståle Solbakken, sem hefur verið við stjórnvölinn hjá Noregi í sex ár, sakar Steve Clarke landsliðsþjálfara Skota um að skorta fagmennsku eftir að Skotar hættu við að spila æfingaleikinn á síðustu stundu.
Skotar hættu við leikinn vegna meiðsla í herbúðum sínum og þeir óttuðust að æfingaleikur við Noreg myndi stofna fleiri leikmönnum liðsins í hættu.
„Þetta er ófagmannlegt af Skotum. Það er ófagmannlegt að þjálfarinn hafi ekki hringt í mig, þeir notuðu liðsstjórann til að hringja í okkur á síðustu stundu, eftir síðustu æfinguna fyrir leikinn. Ég held ekki að leikmenn Skotlands hafi meiðst á síðustu æfingunni, þeir vissu þetta fyrir æfinguna en létu okkur samt ekki vita fyrr en eftirá. Þetta eru vonbrigði en við verðum að lifa með þessu," sagði Solbakken meðal annars og uppskar svar frá skoska fótboltasambandinu.
Skotar segjast ekki hafa gert neitt rangt. Liðsstjórar landsliðanna skipulögðu æfingaleikinn og því eðlilegt að liðsstjóri Skota hafi heyrt í norskum kollega sínum til að hætta við leikinn þar sem landsliðsþjálfararnir komu ekki að skipulagningu æfingaleiksins.
„Við létum liðsstjóra Noregs vita um leið og við tókum ákvörðunina um að hætta við að spila leikinn. Við hörmum að þurfa að hætta við leikinn en teljum okkur hafa fylgt réttum verkferlum. Þess vegna erum við hissa að heyra ummælin úr herbúðum Norðmanna," segja Skotar meðal annars.
Brede Hangeland, fyrrum varnarmaður Fulham, er liðsstjóri Noregs.
„Það er vandræðalegt af þeirra hálfu að hætta við leikinn tveimur dögum fyrir upphafsflautið. Við getum því miður ekkert gert í þessu, við verðum bara að gleyma þessu og reyna að gera gott úr stöðunni. Það fór mikil vinna í að skipuleggja þennan æfingaleik, það voru samkomulög og heiðursmannasamkomulög en allt í einu vilja þeir hætta við," sagði Hangeland.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!