Fotbolti.net
12.06.26 - 23:26
Ívar Björgvinsson

Aron Baldvin: Fengum feedback frá Arnari

Aron Baldvin: Fengum feedback frá Arnari
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn

Víkingur sigraði ÍA 1-2 í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla á ELKEM vellinum. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfara Víkings, eftir leikinn.

„Tilfinningin er hrikalega góð, ég var virkilega sáttur með leikinn að undanskildum fyrstu tíu mínútunum. Mér fannst við óþarflega lengi að finna völlinn, sem er alveg eðlilegt en á meðan þá skiptir orkan miklu máli og þetta var aðeins sloppy í hreyfingum og þess háttar en eftir þessar tíu fannst mér við taka öll völd á vellinum og hefði viljað finna þetta stærra.''

Aron Elís kemur inn af bekknum og skorar annað mark leiksins sem reynist vera sigurmarkið. Það hlýtur að vera mikilvægt fyrir Víkinga að geta sett varamenn inn á sem vinna leiki.

„Það eru bara allir: Aron Elís, Elli, Viktor, Jói Bjarna og Davíð, þetta eru allt stórkostlegir leikmenn og þetta er bara það sem við munum þurfa í sumar, við þurfum á öllum hópnum að halda. Það er hópurinn sem mun ná markmiðunum okkar, ekki fyrstu ellefu, það munar um hópinn og við erum búnir að vera að rúlla liðinu og við munum gera það áfram.''

Gylfi var ónotaður varamaður og Gunnar Vatnhamar ekki í hóp. Hvernig er staðan á þeim?

„Gunnar fór útaf í lokin á móti Eistum í landsleikjahléinu. Þetta var ekkert alvarlegt en var ekki til staðar í dag. Gylfi var á öðru tímabelti og kom eftir langt ferðalag seint heim í gær þannig að það var bara ákveðið að byrja með hann á bekknum og hafa hann til taks og okkur fannst við svo bara ekki þurfa á honum að halda í þessum leik.''

Þetta var fyrsti leikur Víkings eftir að Ögmundur skrifaði undir. Hvernig hefur hann komist inn í hlutina og hvert verður hlutverk hans?

„Það verður bara hörkusamkeppni við Aron sem hefur staðið sig mjög vel en gríðarlega mikilvægt að fá hann inn. Við fengum feedback frá Arnari (Gunnlaugssyni), fengum að nota hann til að fylgjast með honum í landsliðinu. Það er auðvitað langt síðan hann spilaði og erfitt að vita akkúrat standið á honum en fengum mjög gott feedback og treystum á það.''

Víkingur hefur unnið 12 leiki og gert eitt jafntefli í 13 leikjum á þessu tímabili. Hvað er það sem Víkingar eru að gera rétt?

„Við pælum í hverjum einasta detail, við vitum að hvert einasta smáatriði í leiknum getur breytt næstu 5-10 mínútum leiksins. ef uppspil eða pressa heppnast ekki þá geta andstæðingarnir fengið momentum og við þurfum að suffera í staðinn fyrir að vera ofan á, sem getur oft leitt til marks eða hvað það er. Við hömrum á þá að vera alltaf klárir við hvert einasta moment í leiknum.''

Viðtalið í heild sinni má hlusta á í spilaranum að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.