Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 12. júní 2026 19:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man Utd undirbýr tilboð í Fernandes
Mynd: EPA
Man Utd er að undirbúa tilboð í Mateus Fernandes, miðjumann West Ham. Sky Sports greinir frá þessu.

Samkvæmt heimildum Sky Sports metur West Ham Fernandes á um 80 milljónir punda og er ekki að stressa sig á því að selja hann.

Man Utd er líklega ekki tilbúið að bjóða svo háa fjárhæð svo félögin þurfa að ná saman.

Fernandes gekk til liðs við West Ham frá Southampton fyrir 38 milljóir punda síðasta sumar. Hann er efstur á óskalista Man Utd.
Slapp
banner