Mjólkurbikarinn: Aron Þrándar tryggði Víkingi sigurinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA 1 - 2 Víkingur R.
0-1 Óskar Borgþórsson ('59 )
0-2 Aron Elís Þrándarson ('74 )
1-2 Markús Páll Ellertsson ('94 )
Lestu um leikinn
0-1 Óskar Borgþórsson ('59 )
0-2 Aron Elís Þrándarson ('74 )
1-2 Markús Páll Ellertsson ('94 )
Lestu um leikinn
Víkingur er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir sigur á ÍA á Skaganum í kvöld.
Elías Már Ómarsson var nálægt því að koma Víkingum yfir á 25. mínútu en hann átti skalla sem fór í stöngina, í Jón Sölva Símonarson og þaðan út af.
Baldvin Þór Berndsen fékk tvö tækifæri fyrir ÍA stuttu síðar en staðan var áfram markalaus.
Víkingur náði forystunni eftir klukkutíma leik. Valdimar Þór Ingimundarson átti sendingu inn á teiginn og Óskar Borgþórsson kláraði vel.
Aron Elís Þrándarsson bætti öðru markinu við með skalla eftir fyrirgjöf frá Helga Guðjónssyni. Aron var nýkominn inn á sem varamaður og fékk höfuðhögg en lét það ekki á sig fá og skoraði með höfðinu.
ÍA náði að klóra í bakkann í blálokin þegar Markús Páll Ellertsson skoraði með góðu skoti í fjærhornið. Nær komust Skagamenn hins vegar ekki og Víkingur er komið í undanúrslit.