Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. júní 2026 15:52
Fótbolti.net
Stofnuðu íslenskt Aston Villa stuðningsmannafélag - „Gerum þetta!“
Stemning á Ölveri.
Stemning á Ölveri.
Mynd: avfc.is
Mynd: avfc.is
Á dögunum var formlega stofnaður stuðningsmannaklúbbur Aston Villa á Íslandi, Viking Villa Lions er klúbburinn kallaður.

Hér má fara inn á heimasíðu stuðningsmannafélagsins

„Hugmyndin kviknaði þegar ég og Aðalbjörn (Þorgeir Valsson) sátum hlið við hlið á Ölveri og horfðum á úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Við fórum að ræða það að nú væri kominn tími til að klára að stofna formlegan Aston Villa stuðningsmannaklúbb á Íslandi og gera hann að viðurkenndum Lions-klúbbi, en það eru þeir stuðningsmannaklúbbar sem njóta opinberrar viðurkenningar frá Aston Villa," segir Guðmundur Guðmundsson, formaður félagsins.

„Rétt áður en Aðalbjörn fór heim eftir leikinn sneri hann sér að mér og sagði einfaldlega: „Gerum þetta!“ Eftir það fóru hlutirnir að gerast hratt. Ég tók að mér að setja upp heimasíðu klúbbsins og fljótlega bættust fleiri í hópinn. Þar má meðal annars nefna Sigurð Jón (Björgvinsson), sem hefur góð tengsl við fólk innan Aston Villa og hefur hjálpað okkur að mynda beint samband við félagið."

„Áhugi á Aston Villa hefur verið til staðar hér á landi í mörg ár. Við höfum rekið opna Facebook-síðu fyrir íslenska Villa stuðningsmenn frá árinu 2013 og þar eru nú um 300 meðlimir. Af þeim hafa þegar 55 skráð sig í Viking Villa Lions á síðustu dögum. Við bindum vonir við að ná að minnsta kosti 100 skráðum félagsmönnum á fyrsta starfsári klúbbsins."

„Það gerir verkefnið enn skemmtilegra að Viking Villa Lions skuli líta dagsins ljós á sama ári og Aston Villa varð meistari í Europa League."
Slapp
banner
banner