Öllum leikjum er lokið í B- og C-deildum undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM á næsta ári.
Portúgal tapaði fyrir Finnlandi en endar þrátt fyrir það á toppi riðilsins. Þjóðirnar enda með 15 stig á haus og hnífjafnar innbyrðisviðureignir, en Portúgal er með betri markatölu.
Skotland endar einnig á toppi síns riðils á markatölu eftir tvö jafntefli við Belgíu í toppbaráttunni. Skotar rúlluðu yfir Ísrael í lokaumferðinni á meðan Belgar slátruðu Lúxemborg.
Sviss og Wales enda einnig í toppsætum sinna riðla í B-deildinni. Wales vann Tékkland í toppslag í dag.
Í C-deildinni var mikil spenna þar sem Litháen náði afar óvænt að hrifsa til sín toppsætið í sínum riðli. Litháen, Bosnía og Eistland enda jöfn með ellefu stig og vinnur Litháen riðilinn eftir áhugaverða innbyrðisviðureignatölfræði.
Kósovó endar í toppsæti síns riðils með jafn mörg stig og Króatía en betri markatölu eftir jafnar innbyrðisviðureignir. Þjóðirnar unnu auðvelda sigra gegn Gíbraltar og Búlgaríu í dag.
Ungverjaland, Grikkland, Rúmenía og Belarús náðu einnig toppsætum sinna riðla og þá enduðu Króatía og Kasakstan sem liðin með besta árangurinn í öðru sæti.
Finnland 3 - 1 Portúgal
Lettland 1 - 2 Slóvakía
Wales 3 - 1 Tékkland
Albanía 5 - 2 Svartfjallaland
N-Írland 1 - 2 Sviss
Malta 0 - 3 Tyrkland
Ísrael 1 - 5 Skotland
Lúxemborg 0 - 7 Belgía
Litháen 2 - 0 Liechtenstein
Eistland 1 - 1 Bosnía
Gíbraltar 0 - 8 Kósovó
Króatía 4 - 0 Búlgaría
Ungverjaland 6 - 1 Andorra
N-Makedónía 1 - 3 Aserbaídsjan
Georgía 2 - 3 Grikkland
Kýpur 0 - 2 Moldóva
Belarús 6 - 0 Armenía



