Badu eftir sögulegan leik gegn Qarabag: Það var frábær reynsla


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lengjudeildarlið Vestra spilaði fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins fyrr í dag þegar það mætti aserska stórveldinu Qarabag í Bakú.
Leikurinn endaði 3-0 fyrir Qarabag og Fótbolti.net heyrði í Daniel Badu þjálfara Vestra eftir þennan sögulega leik.
„Þetta var nokkurn veginn eins og ég bjóst við. Andstæðingurinn var virkilega sterkur og stemningin frábær, en mér fannst leikmennirnir bregðast mjög vel við hvoru tveggja". Sagði Daniel Badu þjálfari Vestra eftir tap gegn Qarabag
Hvað var leikplanið í dag og hvernig fannst þér liðið þitt framkvæma það?
„Við vissum að Qarabag myndi halda mikið í boltann og reyna að sækja í svæðin úti á köntunum. Mér fannst við verjast þeim stöðum í kringum teiginn okkar virkilega vel á löngum köflum í leiknum. Þeir sýndu sýn gæði í fyrsta markinu og gerðu það vel, það sem ég var ósáttur með var hvernig við missum boltann í örðu og þriðja markinu þeirra. Planið okkar var að refsa þeim þegar þeir misstu boltann en því miður fór það í öfuga átt í dag. Þegar við fengum sénsa til að sækja hratt, þá fannst mér við vera of stressaðir á boltann".
Hvernig var að þjálfa leik í Evrópukeppni?
„Það var frábær reynsla og ég vill þakka leikmönnum og starfsfólki félagsins að gera þetta að veruleika".
Er 3-0 ásættanleg staða?
„Auðvitað erum við svekktir með úrslitin og það er enginn sáttur við að tapa 3-0 en það er staðan og við verðum að taka það á kassann og læra af þessu".
Þið fenguð á ykkur mark rétt fyrir hálfleik og í lok leiks. Það getur ekki verið gott að fá á sig mörk á þessum tímum leiksins?
„Nei það er alls ekki gott og mjög erfitt að fá á sig mörk á þessum tíma leiksins. Við gerðum mistök þegar við reyndum að gera réttu hlutina, en þegar þú ert að spila á þessu stigi þá er þér refsað fyrir svona mistök".
Ibrahima Balde lykilmaður Vestra fór meiddur út af og virtist finna til í öxlinni, breytti meiðsli hans gang leiksins og er eitthvað sem þú getur sagt okkur um hann meiðsli?
„Balde er lykilmaður í okkar liði og móti andstæðing eins og Qarabag er mikilvægt að hafa leikmann eins og hann til að halda boltanum. Jacob kom inn í stað hans og mér fannst hann berjast fyrir liðið og standa sig vel".
„Það er of snemmt að segja með meiðslin hans Balde, hans er stríðsmaður og hann myndi aldrei fara út af í svona leik nema að það væri alvöru meiðsli, en við vonum það besta".
Hvernig leggst seinni leikurinn í þig og hvernig leik sérðu fyrir þér í seinni leiknum?
..Eins og staðan er núna þá er allur fókus á leiknum gegn Fylki á mánudaginn í deildinni. Eftir þann leik munum við byrja að undirbúa okkur fyrir seinni leikinn gegn Qarabag, þeir hafa sýnt sín gæði en við förum inn í leikinn til að berjast og bæta það sem má gera betur í frammistöðu dagsins".






